Tímakvarðinn sem var aldrei til
14.2.2019 | 14:19
Í líkaninu um allsherjar flóðið er jarðfræðilegur tímakvarði ásamt dularfullu nöfnin á berglögunum í þversniði bergs óþörf. Þau voru reyndar aldrei til og rannsakendur sjálfir viðurkenna almennt að berglögin séu hvergi til á jörðinni:
Jarðfræðilegur tímakvarði
Jafnvel þótt að slík berglög séu hvergi til á jörðinni, er ítarlegur tímakvarði sem byggir á þau notaður víða. (The Complete Guide To Rocks & Minerals: John Farndon, Anness Publishing, 2006, bls. 35).
Hugsaðu þér hvað gerist þegar við notum röng líkön til að myndgera heiminn í kringum okkur. Vísindin notuðu eitt sinn líkan af sólkerfinu byggða á jarðmiðju. Voru forspár um hreyfingu reikistjarna að virka? Nei. Galen gerði frægt líkan af mannslíkamanum út frá líffærafræði apa voru skurðaðgerðir byggðar á því líkani áreiðanlegar? Nei. Hvers vegna ætti það að vera eitthvað öðruvísi í jarðvísindum? Jarðfræðilíkan nútíma vísinda er tröllriðið af fjölmörgum leyndardómum, frávikum og ráðgátum sem eru óútskýranlegar í dag.
Jarðfræðilegur tími er afleiðing langs lista af jarðfræðilegum villum sem skráðar eru í UM. Falskenningarnar um óratíma og kviku, sem eiga að vera drifkraftur flekahreyfinga, hafa nokkuð sameiginlegt: hvorug þeirra er rétt og báðar eru hinum virta föður jarðfræðinnar til hróss James Hutton.
Meginflokkur: Bindi II - Kafli 10 | Aukaflokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.