Aldur tunglsins

„Vita“ jarðfræðingar virkilega hver aldur tunglsteina sé? Grein í Scientific American um tunglið lætur mann halda að vísindamenn hafi algerlega leyst leyndóminn um aldur tunglsins:

Þökk sé sýni steina sem Apollo geimfarar söfnuðu, vita jarðfræðingar að árekstrargígar á nærhlið tunglsins mynduðust fyrir um 3,9 milljörðum árum síðan. (Back to the Moon?, Mark Alpert, Scientific American, janúar 2003, bls. 22).

Hvernig „vita“ jarðfræðingar að tunglsteinar séu 3,9 milljarðar ára gamlir? Hversu nákvæmur er 3,9 milljarðar ára aldur ef kenningin um uppruna tunglsins er gjörsamlega röng? Nútíma jarðfræðingar trúa því að tunglið hafi eitt sinn verið bráðinn steinn og að gígarnir hafi allir verið árekstur bráðnaðra steina – sem hvorugt er rétt, eins og útskýrt er í kaflanum um vatnsplánetulíkanið. Steinarnir sem Apollo geimförin komu með til jarðar voru ekki bráðnaðir steinar – en aldursákvörðun steinanna er byggt á rangri kenningu um að þeir hafi verið bráðnaðir!

Til að skilja hversu lítið hinn hefðbundni jarðfræðingur þekkir raunverulega til um aldursákvörðun steina, þá lesum við orð eins jarðfræðings sem skrifaði bók um landrek:

Hér höfum við greinilega gífurlega öfluga tækni til að aldursgreina steina, en við verðum að vera varkár í að bera saman mjög gamla steina þar sem mælióvissan er enn um 3 prósent þannig að, í versta falli, tveir steinar sem ákvarðaðir voru sem 2000 milljón ára gamlir, gæti munað um allt 120 milljónum ára. (Continental Drift: Don og Maureen Tarling, Doubleday & Company Inc., 1971, bls. 28).

Greinin staðhæfir að hin „gífurlega öfluga tækni til að aldursgreina steina“ hefur mælióvissu upp á aðeins „um 3 prósent“, en þó sýna raunverulegar aldursákvarðanir steina hundruði og jafnvel þúsundir prósentu frávik.

Sagt er frá aldri tunglsteina í vísindaritum eins og hann væri mjög nákvæmur, en sannleikanum er lýst af sérfræðingi í aldursgreiningu steina, Dalrymple, í bók sinni The Age of the Earth:

Aldrar sem fengnir eru með geislavirkum efnum fyrir tunglsteina hafa aðallega verið fengnir með vöxt 40Ar/39Ar aldursaðferðinni og með aðferð jafnaldurslínu Rb-Sr og Sm-Nd. Andstætt 40Ar/39Ar aðferðinni, sýndi hin hefðbundna K-Ar aðferðin sig til að vera gagnslítil fyrir tungltímamæli vegna þess að flestir tunglsteinar hafa orðið fyrir árekstrarhita og hafa glatað eitthvað af Ar. Afleiðingin er sú, að hefðbundnir K-Ar aldrar eru venjulega 1 Ga [milljarðar ár] eða yngri en 40Ar/39Ar, Rb-Sr og Sm-Nd aldrar fyrir sömu steina. Á meðan U-Th-Pb aðferðir eru reyndar gagnlegar fyrir rannsakendur á olíumyndandi ferlum og fyrir uppsetningu líkana fyrir þróun tunglsins, þá hafa þær sýnt sig vera ófærar til að skila beinan aldur á tunglsteinum, nema í sjaldgæfum kringumstæðum. (The Age of the Earth: G. Brent Dalrymple, Stanford University Press, 1991, bls. 225-226).

Hvers vegna hafa K-Ar aðferðin, sem er mest notaða aðferðin til aldursákvörðunar með geislavirkum efnum á steinum á jörðinni, og U-Th-Pb aðferðin (sú aðferð sem notuð var á gígnum í Arisónu til að aldursgreina jörðina) sýnt sig vera „gagnslítil“ eða „ófærar til að skila beinan aldur“? Svarið er frekar einfalt og hefur nokkuð sameiginlegt með þeirri ástæðu hvers vegna ekkert salt var fundið á tunglinu – kalín (K), úran (U), þórín (Th) og blý (Pb) eru lífsteinda frumefni sem fundin eru í málmgrýti sem myndast með örverum, aðallega á meðan allsherjar flóðið stóð yfir. Tunglið hefur engin höf líkt og þeim sem á jörðinni eru, né finnst þar líf, þannig að þessar lífsteindir, þar á meðal salt, mynduðust ekki á tunglinu.

Auk þess útskýrir þessi vísbending líka hvers vegna aðferðir aldursákvörðunar með hrörnun frumefna eru allar ógildar. Þar sem mikill meirihluti steinda sem hafa verið aldursákvarðaðir mynduðust í flóði, fyrir aðeins nokkur þúsund árum síðan en ekki úr bráðnuðu milljarða ára gömlum steini, þá eru aldrar úr aldursákvörðun með geislavirkum efnum merkingarlausar. Enn fremur voru næstum allir steinar sem komið var með frá tunglinu ekki glerkenndir og höfðu ekki „orðið fyrir árekstrarhita“, eins og Dalrymple hafði lagt til. Undirkafli 7.13, sem fjallar um vísbendingar um vatnstungl, útskýrir þetta og leiðréttir rangan gamlan aldur tunglsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og núlli?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband