Umrótartímar
18.5.2020 | 11:56
Heimurinn hreyfist, hann skríður. Fram á við, niður á við, snýr ekki aftur. Margir tala um að bráðum verði lífið eins og áður en er það í raun að fara að gerast? Verða hlutirnir nokkurn tímann eins og áður? Hið svokallaða venjulegt líf eru góðar minningar en hins vegar blasir við fyrir okkur annars konar líf. Hvers má vænta? Hvað eða hver orsakar þessar breytingar?
Röð atvika hefur átt sér stað að undanförnu, engin þeirra er tilviljun. Ætli fordæmalaus verði ekki orð ársins, en það sama má segja um 2021 og árin sem fylgja á eftir. Bæði stórkostlegir og grátlegir hlutir stefna til móts við okkur nýir hlutir sem eiga eftir að vekja furðu okkar en líklega einnig gremju og andúð fyrir marga.
Mikill órói er á samfélagsmiðlum og fjölmiðlar miðla oft fréttum sem eru í mótsögn við fjölda vitnisburða vísindamanna og annarra fróðra manna. Ég hef til dæmis bæði heyrt að kóróna veiran hafi verið breytt í rannsóknarstofu, en einnig hið gangstæða, að hún sé algerlega náttúruleg. Báðir aðilar voru háskólafólk með doktorsgráðu. Spurningin hér er ekki hvort veiran hafi verið aðlöguð eða ekki sem er samt vert umræðuefni út af fyrir sig heldur hvernig fjölmiðlar takast á við þessa umræðu, auk umræðunnar á mörgum alvarlegum ásökunum sem eru á lofti um þessar mundir. Hún er nefnilega nánast enginn, heldur upplifum við einhliða fréttaflutning sem oftast snýst um hræðslu.
Hvað er rétt og hvað er rangt? Eru menn svona harkalega ósammála eða er jafnvel einhver með vísvitandi blekkingar? Sagt á hinn bóginn, þá eru sumir gæddir þeirri gáfu að vera gefin þekkingarorð, svo að öllum megi kenna visku og þekkingu (K&S 46:18). En hverjum eru gefin vísdómsorð og þekkingarorð, hverjum má treysta og hvert skal snúa sér?
Þetta er góður tími til að ígrunda, leita inn á við og biðja bænar. Við verðum að fínstilla okkur og greina þá raddir sem í kringum okkur eru og mynda okkur okkar eigin skoðun þótt það gæti reyndar stundum verið samfélagslega bannað.
Við Íslendingar getum sjálfsagt tekið undir þau orð mín og reynslu, að þegar ég var ungur strákur, var fréttatíminn nánast heilagur og ekki mátti tala eða gera hávaða á meðan. Við borðuðum venjulega kvöldmat kl. 19:00 og faðir minn hafði kveikt á útvarpsfréttunum, á meðan allir urðu að hafa hljótt. Þessi leikur endurtók sig klukkutíma síðar þegar sjónvarpsfréttirnar hófust. Ég minnist afa míns sem reiddist okkur ef á fréttatímanum heyrðist bofs í okkur krökkum með orðunum: Svona rétt á meðan!
Það er skiljanlegt að við viljum fylgjast með hvað er að gerast, bæði innan og utan landsteinanna og við höfuð lært að treysta fjölmiðlunum okkar, að rétt sé farið með mál. Aldrei myndum við draga það í efa sem greint var frá í fréttunum.
En síðan varð Trump forseti Bandaríkjanna og hugtakið falsfréttir varð til. Undarlegt að allir forsetar þar á undan hafa fengið sanngjarna og virðingarfulla umfjöllun, hvort sem þeir voru demókratar eða repúblikanar. Hvað olli því þessum umskiptum? Sá sem heldur að klaufaleg framkoma Trumps sé ástæðan, hugsi sig um. Hvers vegna eru fjölmiðlar svo harðir á því að við eigum að hata hann? Hvers vegna er stríð í gangi á milli Trump og fjölmiðla, alveg frá degi eitt? Menn verða að hafa í huga, hver á fjölmiðlana.
Prófessor dr. John Oxford, veirufræðingur og sérfræðingur í inflúensu, sagði þetta nýlega:
Persónulega myndi ég segja, að besta ráðið er að eyða minni tíma í áhorf sjónvarpsfrétta, sem eru æsifengnar og ekki mjög góðar. Ég tel persónulega að þetta Covid útbrot sé eins slæmt og vetrarflensufarsótt... Við þjáumst af fjölmiðlafaraldri! (A View from the HVIVO / Open Orphan #ORPH Laboratory Professor John Oxford).
Verið getur þó að við munum bráðum ekki hafa neitt val, ef marka má frétt Viljans, að Þjóðaröryggisráð vill kortleggja falsfréttir og upplýsingaóreiðu:
Þjóðaröryggisráð hefur ákveðið að koma á fót vinnuhópi til að kortleggja birtingarmyndir og umfang upplýsingaóreiðu í tengslum við COVID-19 hér á landi og gera tillögur um aðgerðir til þess að sporna gegn henni. (Viljinn.is)
Þetta hljómar svolítið eins og að einhver eigi að ákveða fyrir mig, hvað ég megi taka til mín og hvað ekki. Ritstjórn sem segir mér hvað sé rétt og hvað rangt. Já, það hljómar svolítið eins og að innleiða eigi áróðursfréttir sem notaðar voru t.d. í nasista Þýskalandi og í öðrum einræðisveldum. Á RÚV að taka það hlutverk að sér að sjá okkur fyrir fréttum? Hvar endar þetta?
Halldór Armand Ásgeirsson segir upplýsingaóreiðu vera annað nafn á lýðræði. Hann skrifar meðal annars:
Nútímalýðræðissamfélög eru gegnsýrð af skipulegri útbreiðslu misvísandi upplýsinga og valdakerfi þeirra grundvallast að miklu leyti á þeim. Fjölmiðlar eru barmafullir af misvísandi upplýsingum sem þjóna stórum hagsmunaöflum og þegja sömuleiðis skipulega um ákveðin stór mál Við skulum ekki falla í sömu gryfju og Vesturlandabúar gerðu við hrun Sovétríkjanna þegar þeir héldu að þeir einir kynnu að segja sannleikann eða vissu hvað hann væri. Þeirra eigið þjóðfélag var allt saman gegnsýrt af lygaáróðri sömuleiðis. Falskar fréttir eru ekkert nýtt. Þær eru bara, eins og fréttaflutningurinn í Sovétríkjunum var, aðeins augljósari birtingarmynd skipulegra lyga en maður sér annars staðar. (RÚV).
Svörin við öllum spurningunum hér að ofan er hægt að bera kennsl á í ljósi langs aðdraganda sem virðist vera að enda í einhvers konar lokauppgjöri, sem er að hefjast um þessar mundir. Sagan hefur kennt okkur ýmislegt og gott er að rifja hana upp til að geta áttað sig betur á þessa hegðun fjölmiðla og stjórnvalda. Þetta er saga sem hófst í Bandaríkjunum fyrir um það bil 150 árum síðan, en það sem við upplifum í dag er í rauninni framhaldssaga hennar.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Athugasemdir
Það er beiskt og ramt og nærir mig ekki lengur að totta barm þeirra fullu,ég tímgast samt inn í fullvissu guðdomsins.
Helga Kristjánsdóttir, 19.5.2020 kl. 00:38
Ekkert verður sem fyrr.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 19.5.2020 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning