Þróun andspænis vísindalegum staðreyndum

Þróun sem kenning þarf að dæma eftir vísindalegum staðreyndum. Persónulegar skoðanir og hlutdrægni ætti að sleppa, alveg eins og í kviðdómi. Þó svo að vísbendingarnar benda á dagskrá trúlausra þróunarsinna, þá verðum við að gera tilkall til vísindalegra staðreynda ef umbylta á þróunarkenningunni. Enn fremur má hin tíða víxlun á sannleik smáþróunar (aðlögun) og áróðri stórþróunar ekki rugla okkur. Smáþróun, eða breytingin innan tegundarinnar, er raunveruleg, enda er hún sjáanleg á endurtekinn hátt. Á hinn bóginn er stórþróun, eða tegundamyndun þar sem ein gerð lífvera verður að annarri, ekki raunveruleg, enda hefur hún aldrei sést, hvað þá endurtekið. Þannig að vísindalega séð er hún ekki staðreynd. Munum einnig að hugtakið ‚þróun‘ eins og það er notað af þróunarsinnum (og hér í UM almennt) vísar í þá ósönnuðu hugmynd um stórþróun eða tegundamyndun.

Tökum nú á ný samantekt á nokkrum af þessum staðreyndum. Að sjálfsögðu er þetta ekki tæmandi listi, en í stuttu máli er hægt að nefna hér nokkrar beinar vísindalegar sannanir sem fella skal úrskurð um.

  1. Enginn óratími, engin þróun
  2. Engin tegundamyndun, engin þróun.
  3. Engin steinruni í gangi, engin þróun.
  4. Ekkert þróunartré, engin þróun.

Afleiðing einhverra þessara fjögurra staðreynda, sérhver þeirra byggð á og staðfest af eigin orðum þróunarsinna eða af athugunum sem hver og einn getur gert, ákvarðar hver fyrir sig að þróun er röng. Með sannanirnar fyrir framan þig getur þú dæmt nokkuð auðveldlega ‚án nokkurs vafa‘. Það er einföld spurning:

Tilvitnun bls 283-1

Ef þú svarar með , að til sé sönnun sem sýnir án nokkurs vafa að þróun eigi sér ekki stað, þá þurfum við einnig að svara þessari spurningu:

Tilvitnun bls 283-2

Börn hafa nóg að læra án þess að bæta þurfi við uppspunnar kenningar. Það er undirstöðuatriði að við losum skóla okkar við þessa röngu og ógrundvölluðu falskenningu. Hvoru megin munt þú standa í þessari óumflýjanlegu og sögulegu byltingu? Munt þú taka virkan þátt, eða bara fylgjast með þegar hún gengur um?

Fjórar ástæður


Bloggfærslur 10. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband